Bloggsvæði Palla Jó
08.03.2007 09:30:15 / Palli Jóh

Til hamingju með daginn Jón Páll.

Óska öllum konum til hamingju með daginn. Fyrir þær sem eru hér á Akureyri bendi ég að fund sem haldinn verður í Háskólanum á Akureyri sem femínisafélag Akureyrar stendur fyrir.

Jón Páll litli prinsinn og barnabarnið okkar á afmæli í dag, ekki slæmt að vera fæddur á Alþjóðlegum degi kvenna. Stráksi er orðin tveggja ára til hamingju með það.

Minni enn og aftur á nýja bloggið: http://www.pallijoh.blog.is/blog/pallijoh/

Spurning dagsins: Var Palli einn í heiminum? 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:52:48 / Palli Jóh

Kíkið á pallijoh.blog.is

Gæti orðið latur að blogga hér á næstu dögum en prufið að kíkja á þetta http://www.pallijoh.blog.is/blog/pallijoh/ og athugið hvað þar er að sjá.

Fróðleikur dagsins: Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf, gerst aftur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 11:20:34 / Palli Jóh

Þriðjudagur til þrautar eða hvað?????????

Enn halda vandræðin áfram hjá Eggert Magnússyni og félögum sem gerðust svo djarfir að kaupa enska knattspyrnuliðið West Ham City. Ég verð að játa að ég dáðist að fífldirfsku hans að ráðast í að kaupa þetta félag, nú er ég eiginlega farin að vorkenna karlinum, svo ekki sé nú fastara að orði kveðið.

            Loksins, loksins segja sumir virðast Framsóknarmenn vera að fá nóg af ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðismenn. Hriktir í stoðum samstarfs Framsóknar og Sjálfstæðis vegna ákvæði um að fiskurinn í sjónum skuli vera bundið í Stjórnarskrá Íslands sem eign þjóðarinnar. Ekki er hægt annað en vorkenna Framsóknarmönnum fyrir það að þeir hafi þurft öll þessi ár til að átta sig á þeim mistökum að binda trúss sitt við þennan stjórnmálaflokk svo lengi og leyfa þeim að taka sig í ….. án þess að hreyfa mótmælum. Ekki geta þeir sagt að engin hafi varað þá við, eða hvað?

En sem betur fer hefur stjórnarandstaðan boðið Framsóknarmönnum liðsinni til þess að bjarga þessum málum. Ég tel að nú sé nóg komið og binda verði endi á að útgerðarmenn geti ráðstafað óveiddum fiski í sjónum að eigin vild. Stjórnleysi í fiskveiðum hefur því sem næst lagt heilu byggðarlögin í eyði. Vestfirðingar hafa þó einna helst blætt hvað mest, og það sem er sorglegast við það er að Vestfirðingar búa landsfræðilega best allra til þess að stunda fiskveiðar, og hana nú.

             Nú er allt útlit fyrir að Ómar Ragnarsson, Margrét Sverrisdóttir ætli að fara af stað með enn eitt framboðið. Þá er víst ekki loku fyrir það skotið að öryrkjar og aldraðir fari af stað með álíka framboð. Er þetta örugg leið til þess að frysta málum öryrkja og aldraða. Varla gerir nokkur maður ráð fyrir því að t.d. einn fulltrúi öryrkja og aldraða komi málefnum þeirra í gegn á þingi? Ég segi enn og aftur öll svona sérframboð eru til þess eins fallin að gera stjórnarmyndun eftir kosningar enn erfiðari. Hefði verið gáfulegra hjá öryrkjum og öldruðum (að Ómari meðtöldum) að flykkja sér að baki einhvers eins framboðs og þannig láta rödd sína hljóma og hugsanlega koma málefnum á framfæri.

           

Fróðleikur dagsins: Enginn er karlmenni, sem segir ekki satt. Öll lygi er bleyðiskapur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 17:24:56 / Palli Jóh

Laugardagur til lukku og fótbolta ....

Föstudagurinn var afar annasamur í meira lagi. Hófst með morgunkaffi í Hamri með þeim góða hópi sem þar kemur saman alla föstudaga, málin rædd og leyst.

            Fékk um kvöldið ættarhöfuðin í mat í Drekagilið. Með þeim kom Lalla frænka sem búsett er í henni STÓRU Ameríku. Þar hefur hún dvalið meirihluta ævi sinnar. Skemmtilegt kvöld þar sem rifjaðar voru upp sögur frá ,,gömlum” dögum. Kvaddi hana frænku með tárum enda er hún á heimleið og hver veit hvernær við hittumst að nýju? Gaman væri að snú þessu við og drífa sig sjálfur út til hinnar STÓRU Ameríku og heimsækja Löllu og fjölskyldu.

            Settist niður þegar gestirnir fóru og horfði á X-factor með hraðspólunaraðferðinni frægu og náði að horfa á þáttinn á nýju meti. Skil ekki af hverju í andskotanum maður er að horfa á þetta hundleiðinlega sjónvarpsefni? Þó eru það ekki keppnendurnir sem fara í taugarnar á mér heldur sumir dómararnir, þó aðallega einn. Er komin með grænar bólur af viðbjóði yfir nafna mínum Óskari. Hvernig í fjandanum ætli fólki liði við að horfa á sjónvarp ef allt sjónvarpsfólkið myndi tala um kynhneigð sína í tíma og ótíma? Og ég sem hélt að þetta snérist um frammistöðu söngvaranna sem taka þátt í keppninni en ekki kynhneigð Páls Óskars. X-factor fær frekar slaka einkunn hjá mér en Páll fær hins vegar falleinkun.

            Þórsliðið í körfubolta heldur áfram sigurgöngu sinni á Íslandsmótinu í körfubolta en liðið spilaði í gærkvöld við hið unga lið FSu í gærkvöld. Lauk þeim leik með stór sigri Þórs 68 – 103.  Í dag héldu þeir síðan vestur á Ísafjörð og léku við lið KFÍ og liktaði þeim leik með öruggum sigri Þórs 95 – 109. Hefur liðið leikið 12 leiki í vetur og unnið þá alla afar sannfærandi. Ég verð að hrósa vinum mínum vestur á Ísafirði því þeir hafa beina netútsendingar frá öllum heimaleikjum liðs síns í vetur. Því horfði ég á leikinn í beinni og kann ég Ísfirðingum þakkir fyrir að geta notið þessa. Þulur leiksins fær stórt hrós frá mér, hann lýsti leiknum afar vel og fagmannlega og ekki nokkur leið að saka hann um að draga taum sinna manna. Þetta er greinilega maður sem kann sitt fag. KFÍ menn fá sem sagt hrós dagsins í dag frá mér.

            Getraunastúss í morgun í Hamri eins og venja er á laugardögum. Leikur Liverpool og Man Utd. sýndur beint í Hamri á rísaskjá og komu rúmlega 100 manns þegar mest var til þess að horfa á. Frábær skemmtun.

            Mínir menn í Man City töpuðu enn einum leiknum og eru skyndilega komnir í bullandi fallbaráttu og verða að gjörasvo vel að hysja upp um sig brækurnar ef þeir vilja ekki fara eiga mig á fæti.

           

Fróðleikur dagsins: Lygin er eins og snjóbolti. Því lengur sem honum er velt, því stærri verður hann.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:12:47 / Palli Jóh

Bíódísel.

Vert er að fagna því að í dag var stofnað hlutafélag á Akureyri um framleiðslu á jurtaolíu, sem eldsneyti. Verður flutt inn hráefni frá Kanada til framleiðslunnar. Skilst manni að um sé að ræða að framleiða svokallað Bíodísel úr korni sem flutt verður inn til landsins. Stefnt er að því framleiða allt að 60 þúsund tonn af olíu sem mun duga til að sinna þörfum fiskiskipaflota landans þ.e. þann sem notar hráolíu. Þessi verksmiðja mun verða sett á laggirnar í gömlu húsum Krossanesverksmiðjunnar, gott mál.

            Forstjóri Landhelgisgæslunnar telur skynsamlegt að staðsetja eina af björgunarþyrlunum á Akureyri. En tekur þó fram að það sé ekki gerlegt nema ríkisvaldið komi að því með auknu framlagi. Er þetta eitt af þeim málum sem verðandi þingmenn í norð/austur kjördæmi ættu að berjast fyrir og lofa í kosningabaráttunni, og standa svo við loforðin þegar á þing verður komið.

            Heyrði í útvarpinu í dag að það er búið að sanna að það skipti engu hvort maður talar í farsíma með handfrjálsum búnaði eður ei. Veit ekki hvernig farið er að mæla svona en engu að síður athyglisvert, engu að síður.

            Á morgun mun virðisaukaskattur á hinum ýmsu matvörum lækka svo gaman verður að fylgjast með hvernig vöruverð mun líta út þegar búðir opna á morgun. Þó hefur maður fengið örlítin nasaþef af þessu í Bónus enda þeir búnir að lækka hjá sér fyrir nokkrum dögum síðan.

            Þegar þetta er ritað er stutt í að 30 þúsundasta heimsóknin á bloggið líti dagsins ljós og bið ég þann sem á hittir að rita nafn sitt í gestabókina sem og commenta eitthvað.

 

Fróðleikur dagsins er að þessu sinni vísa eftir Sigurð Pétursson og gæti jafnvel átt við mig.

 Þó ég fótinn missi min, mín ei rénar kæti, hoppað get ég í himininn haltur á öðrum fæti.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 23:11:02 / Palli Jóh

Hver er fljótlegasta leiðin??????

Er með móral – mikinn móral – ferlegan móral – úúúppppps. Þegar maður lætur líða of langt á milli færsla þá er hætt við því að maður gleymi einhverju. Og það er nákvæmlega það sem gerðist. Hún systa mín sem býr suður með sjó átti afmæli 24. febrúar og ég gleymdi að nefna það hér á blogginu. En mundi þó eftir deginum og sendi henni sms eldsnemma að morgni afmælisdags. En enn og aftur systa til hamingju með daginn.

            Búinn að sitja sveittur við tölvuna í allan dag við skriftir. Tók að mér það verkefni að tölvugera eitthvað á annað hundrað blaðsíður fyrir aldraðan mann sem hafði það að áhugamáli að yrkja vísur. Svo nú þarf maður að rifja kunnáttuna til að lesa gömlu lykkjuskriftina. Verð orðin vel fær í henni aftur þegar þessu verkefni lýkur.

             Fátt er meira rætt í þjóðfélaginu en svifriksmengun. Einhvern vegin finnst mér eins og þetta hálfgert nýyrði í Íslenskunni. Hef það á tilfinningunni að um þetta hafi ekki verið rætt um fyrr en fyrir 2-3 árum. Áður fyrr var mengun eitthvað sem bara var vandamál erlendis……. Nú er þetta allt í einu vandamál hér á Íslandi, landinu sem við eru jú alltaf að básúna sem hreinasta land í heimi. Við Íslendingar ættum að verða okkur úti um svipaðan markaðsfulltrúa og þann sem fann upp á því rangnefni að nefna stærsta jökul í heimi ,,Grænland”.

            Las ferlega fyndna frétt á vef Baggalútsmanna þar sem sagt er frá því að Lögreglan í Reykjavík hafi fengið nýjan klámhund til starfa. Hvet fólk til þess að skreppa á www.baggalutur.is og lesa greinina, tær snilld.

            Hitti mann á förnum vegi sem spurði mig hvort ég vissi hver væri fljótlegast leiðin til þess að fylla upp í skurðinn í Heiðmörkinni sem Kópavogsbær lét grafa? Ég velti vöngum spáði og speguleraði smá stund en átti ekki svar, viðmælandi minn sagði að fljótlegasta leiðin væri að leggja Gunnar L. Birgisson ofan í hann J

           

Fróðleikur dagsins: Þér getur misheppnast marg oft en ert ekki misheppnaður fyrr en þú ferð að kenna öðrum um.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 22:13:14 / Palli Jóh

Loksins bloggað.

Óhætt er að segja að vegna anna þá hefur ekki gefist mikill tími til þess að blogga seinustu daga. Við feðgar skruppum á fund hjá Samfylkingunni þar sem málefni +60 fólksins var eina mál fundarins. Fínn fundur þar sem aðalræðumaður kvöldsins var engin annar en Össu Skarphéðinsson.

            Föstudagur nokkuð hefðbundinn á margan hátt. Hófst með kaffi í Hamri eins og venja er til þar sem mál líðandi stundar voru rædd og leyst. Þá fór stór hluti dagsins í ýmislegt venjubundið föstudagsstúss hingað og þangað, þó aðallega þangað.

            Missti vitið um kvöldið og horfði á X- factor og hefði svo sem átt að vita betur því tímanum hefði verið hægt að eyða á skynsamari hátt…. Allir keppendur afspyrnuleiðinlegir, slakir og verðskulduðu allir að vera sendir heim. Verð þó að játa að sumir af dómurum þáttarins eru farnir að fara meir en góðu hófi gegnir í taugarnar á mér. Fer þar fremstur í flokki nafni minn Óskar Hjálmtýrsson. Er orðin meir en nett pirraður á þessu andskotans hommatali í manninum. Er orðin þörf á því að senda manninn í meðferð til þess að fá hann til þess að hætta tala um kynhneigð sína.

            Á föstudagskvöld varð körfuknattleikslið Þórs deildarmeistarar í 1. deild án þess að snerta bolta. Breiðablik sem var eina liðið í deildinni sem gat náð Þór að stigum tapaði þá leik gegn Stjörnunni sem þýðir að Þór er búið að vinna deildina. Liðið á þó enn eftir að spila 4 leiki í deildinni. Markmið liðsins er að fara taplaust í gegnum tímabilið og vonandi tekst það.

            Laugardagsmorgun var haldið í Hamar til þess að sinna getraunastarfi Þórs eins og svo marga aðra laugardaga. Mikið líf og fjör var í Hamri þennan dag sérstaklega vegna Goðamóts sem Íþróttafélagið Þór stendur fyrir á hverjum vetri.

            Eftir að getraunastarfinu lauk fór ég að fund í Lárusarhús þar sem Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar undir forystu Sölmundar stóð fyrir flottum kynningarfundi um kosti og galla þess að Ísland gerist að fullu aðilar að Evrópusambandinu. Frummælendur voru prófessorarnir Ingi Rúnar Eðvarðsson frá Háskólanum á Akureyri og Þorvaldur Gylfason frá Háskóla Íslands. Þessi fundur var vel skipulagður og mjög skemmtilegur í alla staði og ungliðum til mikilla sóma.

            Barnabörnin og systurnar Margrét Birta og Elín Alma komu svo í heimsókn til afa og ömmu snæddu mat og horfðu á sjónvarp með gamla settinu. Var sett mynd í DVD að þeirra ósk, allir í náttföt og svo cillað þokkalega, mikið gaman og mikið fjör. Svo fengu krílin að sofa hjá þeim gömlu, það þótti þeim ekki beint leiðinlegt.

            Horfði í dag á deildarbikarúrslitarleik Chelsea og Arsenal. Þar sem englandsmeistaranir mættu með sitt sterkasta og stjörnuprýdda lið gegn hálfgerðu varaliði Arsenal. Þótt Chelsea hafi farið með sigur af hólmi í leiknum mátti þó ekki á milli sjá hvort liðið var að nota sitt sterkasta lið. Arsenal- liðið fær hrós frá mér og verð ég að játa að yfir sigri Chelsea var dálítið mikil heppni.

 

Fróðleikur dagsins:    Tárin sjást, en ef hjartanu blæðir, - hver sér það?


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 09:41:49 / Palli Jóh

Allir hlægja á öskudaginn....

Dagurinn i gær þ.e. Sprengidagur var stór dagur og anna samur. Það sem einna helst bar til tíðinda í ættinni var að systur/dóttir mín henni Aníta ól sitt fyrsta barn í gær. Fæddist henni og kærasta hennar honum Davor 16 merkur drengur myndarlegur að sögn. Svo ef að líkum lætur þarf að líta upp í hæstu hæðir til þess að sjá hana Hrönn systur mína enda bættist í barnabarna hópinn hjá henni enn frekar. Sendi þeim öllum mínar bestu kveðjur og vona að litli snáðinn dafni vel. Vonandi haga svo örlögin því að hann fái hið yndisfríða Fíragotta-lúkk sem þykir jú afar fallegt svo ekki sé dýpra í árina tekið.

            Þó byrjaði dagurinn uppi á FSA þar sem gerð var tilraun með að setja karlinn í sprautumeðferð á baki, og svo er bara bíða og sjá hvaða áhrif það hefur á bakið?

            Saltkjöt og baunaveisla í Drekagilinu þar sem Dagga, Jói ásamt börnum komu og átu þennan kraftmikla mat af bestu lyst og innlifun. Saltkjöt og baunir er ,,gamall” þjóðlegur siður sem ég er þakklátur fyrir að hefur haldið velli – halleljúja.

             Öskudagur er runninn upp með öllu því húllumhæ sem honum fylgir þ.e.a.s. um allan bæ má sjá hinar ýmsu furðuverur á sveimi. Rifjast upp þegar maður sjálfur var á þeim aldri að geta leyft sér að sleppa sér og láta eins og manni var og er eðlilegt. Í dag hefur maður því miður misst þann eiginleika, sem börnum einum er gefið þ.e. að vera eðlilegur og skammast sín ekki fyrir það. Fer alveg örugglega í bæinn á eftir með myndavélina og smelli og tek skot hingað og þangað og leita uppi skemmtilegar furðuverur, til að gleðjast yfir á eftir.

 

Fróðleikur dagsins: Ekki eru það þyrnarnir, sem stinga þig, það ert þú, sem stingur þig á þyrnunum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 23:32:53 / Palli Jóh

Tap og ekki tap.

Þegar vafrað eru um heim netmiðlanna kemur ýmislegt í ljós. T.d. las ég að læknar í Kína hafa beðist afsökunnar á því að hafa lengt vitlausan fót á 5 ára dreng. Laga átti helti drengsins með því að lengja annan fótinn sem var of stuttur. Nú þarf blessað barnið að fara í tvær aðgerðir til viðbótar, eina til að stytta aftur fótinn og lengja hinn fótinn sem upphaflega átti að lengja.

Þá rakst ég á frétt þess efnis að Sænsk fegurðardrottning hafi verið svipt titli fyrir þá sök að eiga barn….. ekki er nú öll vitleysan eins.

Og talandi um vitleysu þá er greint frá því að knattspyrnuliðið Chelsea hafi tapað litlum 10 milljörðum á seinasta ári – veit ekki með ykkur en þarna held ég að þetta sé eitt gott dæmi um sorglega hlið fótboltans.

Fór á aðalfund knattspyrnudeild Þórs í kvöld þar sem árið 2006 var gert upp. Ólíkt olíuboltaliðinu Chelsea þá skilaði knattspyrnudeild Þórs góðum hagnaði sem er jú afar ánægjulegt. En víst er að allar tölur úr ársreikningi enska olíuliðsins sé örlítið annars eðlis en hjá okkur, eitthvað hærri tölur. Alla vega rekum við okkur réttu megin við núllið sem er eitthvað sem ekki eru líkur til að olíuklúbburinn muni gera á næstu árum.

            Í fréttum í dag er greint frá því að allar líkur séu á því að Krossanesverksmiðjan sáluga muni öðlast nýtt líf á næstu misserum. Uppi eru hugmyndir um að framleiða diselolíu úr höfrum sem fluttir yrðu inn til landsins frá Kanada. Ef þetta verður að veruleika þá er full ástæða til að fagna þessu.

           

Fróðleikur dagsins: Hamingja býr í hjarta manns, höpp eru ytri gæði.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 15:52:52 / Palli Jóh

Konudagurinn og fl.

Gærdagurinn var afar annasamur enda sátum við feðgar á fundum frá hádegisbili og fram á kvöld. Tókum þátt í málefnavinnu þar sem lagðar voru skýrar línur fyrir komandi alþingiskosningar. Misstum þar af leiðandi af öllu sjónvarpsefni eins og t.d. Euróvísion og Spaugstofunni.

            Og talandi um Euróvísíon þá ákvað þjóðin að senda rokkhundinn Eirík Hauksson í lokakeppnina og held ég barast að það geti orðið spennandi að fylgjast með honum þar.

            Konudagurinn hófst með því að konunni voru færð blóm, og miði út að borða sem og boðsmiðar á leik Þórs og Ármann/Þróttar í körfubolta sem settur var á í dag.

            Því miður sýndi þetta sameiginlega lið af sér þann dónaskap og ræfildóm að gefa leikinn til þess eins og losna undan því að þurfa leggja land undir fót og mæta til Akureyrar. Það er dapurlegt að vinna leik á þeim forsendum að andstæðingurinn þorir ekki að mæta til leiks. Er okkur Þórsurum sýndur slíkur dónaskapur með þessari framkomu að ekki tekur nokkru tali. Sunnanmenn verða fyrir vikið dæmdir til þess að greiða einhverja sekt til Körfuknattleikssambandsins, en við Þórsarar sitjum uppi með tekjumissir af þessum sökum og ánægju af því að horfa á körfubolta. Við þá sunnamenn segi ég og skrifa með stórum stöfum ,, SVONA GERIR MAÐUR EKKI – SKAMM OG SVEI ATTANN”.

            Settist niður eftir matinn og horfði á mína menn í Manchester City leggja lið Preston á útvelli í ensku bikarkeppninni og eru þeir því komnir í 8 liða úrslit.

            Í þessum skrifuðu orðum þá er beðið eftir því að barnabörnin komi í heimsókn í snemmbúið bollukaffi að hætti Grétu ömmu. Þar svíkja sko ekki heimtilbúnu vatnsdeigsbollurnar hennar frekar enn fyrri daginn.

            En að lokum óska ég öllum konum til sjávar og sveita til hamingju með daginn.

 Fróðleikur dagsins: Listin að vera hamingjusamur er fólgin í því að velja sér einföld gleðiefni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 10:59:32 / Palli Jóh

Laugardagur til lukku....

Ég finn til með Beckham hjónunum þessa daganna – já og það mikið. Þau þurftu að eyða Valentínusardeginum sitt í hvoru lagi. Hugsið ykkur þessi grimmu örlög sem þetta saklausa fólk þarf að búa við og lifa með….. En sem betur fer þá hugga ég mig við að meiri hluti Bandaríkjamanna deilir þessum áhyggjum með mér…. Svo að greinilegt er að ,,Palli er ekki einn í heiminum”. En í raun – ekki er nú öll vitleysan eins.

            Kaffi í Hamri í gær samkvæmt venju. Þar sem málefnin voru rædd og leyst að vanda þótt ekki sé alltaf allir sammála, en eru þó sammála um að það sé í góðu lagi að vera ekki alltaf sammála, en ganga þó sáttir til vinnu aftur.

            Að öðru leiti var föstudagurinn anna samur í meira lagi. Fórum í matarboð til vinarfólks okkar þ.e. Ívans og Dagnýjar. Eins og húsfrúnni einni er lagið þá klikkaði nákvæmlega ekki neitt í því matarboði. Þegar líða tók á kvöldið settumst við karlarnir niður og pældum í því hvort og hvernig við gætum tekið þátt í 8. mars n.k. Ívan vill fara á skíði upp í Hlíðarfjall en ég hallast frekar á ,,Bláa Lónið” finnst einhvern veginn eins og nafnið segi allt sem segja þarf…. Einhverra hluta vegna þá fannst konunum þessi umræða okkar ekki eins fyndinn og okkur körlunum.

            Horfðum með öðru auganu á X-Factor í gærkvöld og notaði einnig annað eyrað. Það sem kom einna helst á óvart var að besti söngvarinn datt út úr keppni. Varð samt afar undrandi á ummælum Einars Bárðarsonar sem hann lét falla um efasemdir sínar um hæfni Ellýar um að meta framvegis um hvað sé góður söngvari. Eigi þessi athugasemd Einars rétt á sér hefði hann einnig átt að láta þau falla um nafna minn Pál Óskar þar sem hann sendi einnig umræddan keppanda heim. Að öðru leiti er mér svo sem alveg sama hvernig þessi keppni fer því hún er bara hundleiðinlegt og nær á engan hátt til mín enda horfi ég og hlusta með takmarkaðri athygli á þennan dagskrálið.

            Laugardagur hefði samkvæmt venju átt að þýða getraunastúss í Hamri. En enn og aftur þarf ég að taka mér frí þessa helgi. Við feðgarnir brunum austur í Reykjadal nánar til tekið að Narfastöðum og tökum þátt í mikilli málefna vinnu hjá Samfylkingunni fyrir komandi þingkosningar í vor.

            Í kvöld velur þjóðin hvaða lag hún vill senda í Evróvísíon í ár. Veit svo sem ekki mikið um hvaða lag og flytjendur eru líklegastir til að vinna. Svo að fróðlegt verður að vita hvaða lag muni standa uppi sem sigurvegari.

            Að lokum þetta allir karlar sem bloggið lesa muna eftir morgundeginum….. hann kemur og ef þið munið þá…….. J

 Fróðleikur dagsins: Hamingja er að eiga nóg í sjálfum sér.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 16:39:02 / Palli Jóh

Blessuð sé minnig Áka ....

Þessi dagur er fyrir margra sakir nokkuð merkilegur. Því þennan dag árið 1958 fæddist Áki Elísson, sem var minn besti og ljúfasti vinur. Hann lést árið 1994 langt fyrir aldur fram einungis 36 ára að aldri. Hann hefði orðið 49 ára gamall i dag væri hann meðal okkar. Ég hugsa sérlega til hans á þessum degi með þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman meðan hann var meðal oss.

            Hádegisfundur í Hamri í dag hjá framkvæmdarstjórn Þórs. Fínn fundur þar sem hin ýmsu mál voru rædd.

            Þá er mikið búið að vera að gera í dag við að sinna barnabörnunum við hinar ýmsu útréttingar, ljúf og góð vinna.

            Las í gær (ef ég man rétt) að nú sé það staðfest að Breskar konur séu þær brjóstbestu í heimi. Án þess að ég viti hvernig það var mælt út og rannsakað þá alla vega eru þær taldar með stærstu brjóst að meðaltali meðal kvenna í heiminum öllum. Mikið gott að Bretinn er bestur í einhverju þ.e.a.s. ef þetta kallast að vera bestur í einhverju. Mér er þó spurn enn og aftur ,,skiptir stærðin máli?”.

            Nú er rifist á hinu háa Alþingi vegna ummæla Valdimars Leó fyrrum Samfylkingarmanns sem nýverið gekk til liðs við ,,Frjálslynda” þar sem hann líkir eiturlyfjainnflytjendum við hryðjuverkamenn…. Þessi yfirlýsing Valdimars vakti Framsóknarmenn til lífsins og nú eru þeir komnir í hár saman…. Gaman gaman.

           

Fróðleikur dagsins: Hamingjunni má líkja við markað, þar sem verðið lækkar að jafnaði ef menn gefa sér tíma til að bíða.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 09:34:13 / Palli Jóh

Silfurbrúðkaup dagsins.

Í dag eru liðin heil 25 ár frá því að hjónakornin Palli og Gréta gengu í það heilaga, sem sagt silfurbrúðkaupsafmæli. Til er fólk sem telur það með ólíkindum að ,,Vatnsberinn” skuli hafa haldið einbeitingu svo lengi sem raunin er á. Aðrir telja að þessari löngu sambúð megi þrautseigju og þolinmæði Grétu að þakka, víst er að mikið er til í því. Samt líður víst Palla einhvern vegin svona ,,Það er eins og gerst hafi í gær”.

            Á þessum 25 árum + einhver slatti af trúlofunartíma og tilhugalífi þá liggja samt spor víða eftir þessi hjónakorn sem þau vilja ekki einu sinni láta fenna í. Það eru spor eins og börn og barnabörn sem þau eru sannarlega stolt af og grobba sig af í tíma og ótíma, sumum til skemmtunar (þó mest sjálfum sér), öðrum til ama (sem ekki enn hafa eignast barnabörn).

 

Fróðleikur dagsins er tekin upp úr bók dagsins sem Gréta gaf Palla af tilefni dagsins og hljóðar svo: Sjáum til – hringurinn er orðinn svo þröngur að ég næ honum ekki af. Leyfum honum að vera. Árin hafa breytt höndum mínum en ekki hjartanu.


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 11:32:25 / Palli Jóh

Eyrnakonfekt og fleira.

Þótt nokkuð vel hafi gengið í getraunum í gær, það er sölulega séð. En tippararnir náðu hins vegar ekki góðum árangri í tippinu. Kenna menn um skrítin úrslit úr leikjum dagsins…… veit ekki en kannski þeir hafi bara tippað hálf asnalega, hver veit?

            Nú alla vega fóru ekki allir leikirnir eins og margur hugði t.d. mátti ég sætta mig við að mínir menn yrðu að lúta í gras í gær. Og við það tap fer að styttast í að ,,Falldraugurinn” illræmdi fari að narta í hælana á mínum mönnum ef þeir fara ekki að rífa sig upp á rassgatinu og snúa vörn í sókn.

            Þar, sem við feðginin vorum bara tvö heima í gær (Sölli á formanna þingi ungra jafnaðarmanna og Gréta á Króknum) var kvöldinu breytt í tónleika þema í Drekagilinu. Eftir að hafa farið út að borða fórum við heim og settum DVD tónleika disk  Pink Floyd in concert P.U.L.S.E. Þar eru t.d. perlur eins og ,,Shine on you Crazy diamound” - ,,Wish you were here” - ,,Money”  og fleiri perlur. Græjurnar hátt stilltar og við lágum í sælu vímu og nutum lífsins við að njóta þessa eyrakonfekts.

            Þegar þessu lauk tók annað snilldarverkið við þar sem við settum í DVD spilarann Led Zeppelin ,,The song Remains the same” Þar voru hinar ódauðlegu perlur eins og t.d. Stairway to Heaven” – Whole Lotta love”. Unglingurinn á heimilinu sat algerlega dolfallinn á því að sjá og heyra í gítar snillingnum Jimmy Page sem klárlega er einn af goðsögnum samtímans. Þvílíkt eyrakonfekt og fyrir þá sem ekki til þekkja, kynnið ykkur þetta strax, þá meina ég strax.

            Við Samfylkingarmenn gleðjumst yfir nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag þar sem fylgi okkar er aftur á hraðri uppleið. Hef reynar alltaf haft ákveðnar efasemdir um gildi þessara skoðanakannanna en vonandi gefur þetta þó ákveðnar vísbendingar um að þjóðin sé að átta sig á því að það sé löngu tímabært að senda þessa ríkisstjórn í langt frí, þjóðin á betra skilið en að sitja uppi með þessa ráðamenn enn eitt tímabilið.

            Einn klikkaður tekinn á 106 km hraða á Drottningarbraut við Kaupvangsstræti í gærkvöld þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km. Gaf maðurinn þá skýringu að hann hefði verið að reyna ná grænu ljósi…… Reiknað er með því að maðurinn fái 75 þúsund króna sekt og verði sviptur ökuleyfi  í einn mánuð…. Kannski hefði verið betra að doka í 2-3 mínútur eftir græna ljósinu?

            Af fréttum síðustu viku er ein dapurleg frétt þess efnis að nú er búið að ákveða að loka verksmiðjunni í Krossanesi. Það er dapurlegt að ekki sé hægt að halda þessari verksmiðju gangandi áfram og leyfa henni að breiða af og til yndislegri peningalykt yfir bæinn okkar, sorglegt og víst er að ég mun sakna þessara verksmiðju.

            Önnur frétt frá liðinni viku vakti áhuga hjá mér og það er sú staðreynd að ásókn í Hreindýraveiði hefur aldrei verið meiri en nú. Mun mikill fjöldi veiðimanna þurfa bíta í það súra epli að fá ekki leyfi. En aftur á móti gleðjast kannski Hreindýrin sjálf yfir þeirri staðreynd að ekki fái allir veiðileyfi sem sækja um. Af þessu tilefni datt mér í hug að enda blogg dagsins á snilldar góðri vísu eftir Kristján frá Djúpalæk sem ég held mikið uppá og á vel við í tengslum við þessa frétt, og heitir sú vísa ,,Veiðar”.

 

Veiðar.

Vopnaður hleypur heiðar

hreindýraveiðimaður.

Moldugur upp að mitti,

miðandi þar og hér.

Hreintarfur hugsar með sér:

- Dásamlegt ef hann dytti.

Drottinn minn ef hann hitti.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 37
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012